Æfingaaðild - Besti leiðin að bætingum!


Sem meðlimur í æfingaaðild Golfstöðvarinnar getur þú bókað golfhermi allt að daglega í 30-60 mínútur í senn án þess að greiða fyrir annað en fasta mánaðarlega upphæð, 19.900kr*


*Aðeins er hægt að bóka einn dag fram í tímann. (T.d. að morgni miðvikudags er hægt að bóka á hvaða lausa tíma sem er á fimmtudegi)

*60 mínútur á dag er hámark per aðildaraðila.


Engin binding, endilega prófaðu einn mánuð með því að skrá þig hér að neðan.


Ef þú hefur einhverjar spurningar skaltu ekki hika við að senda á golfstodin@golfstodin.is





Umsagnir notenda æfingaaðildar


Ólafur Vigfússon


Mér finnst aðstaðan öll til fyrirmyndar. Glæsilegir hermar og flott snyrtiaðstaða. 

Ég sé alls ekki eftir því að skrá mig í æfingaaðildina, því mér finnst að maður sé að fá mikið fyrir peninginn þegar maður er duglegur að mæta og svo er bara ótrúlega skemmtilegt og gott fyrir mann að geta æft innanhús um vetrarmánuðina.

Ég ætla gjarnan að fá að taka annan mánuð.

Svo að lokum vil ég bara nefna, hvað það er þægilegt að ná í Bjarna ef maður þarf að spyrja um eitthvað,

persónuleg og notaleg þjónusta.


Hildigunnur Helgadóttir


Ég er mjög ánægð með aðildina og fyrirkomulagið á henni. Þarf þó að segja upp aðildinni í næsta mánuði en kem mjög fljótlega aftur.
Tveim dögum seinna - Ég er hætt við að hætta, þetta er of gaman!


Baldvin Mattes


Ég er mjög ánægður og finnst þetta geggjaður díll! Sérstaklega fyrir mig þar sem ég æfi oft 2-4 sinnum í viku. Ég er búinn að vera mæla með þessu við vini mína og það finnst öllum um geggjaðan díl að ræða, en hvað sem þeir gera mun ég halda áfram áskriftinni.


Ragnar Árnason


Mér finnst þetta flott fyrirkomulag og ég hef nýtt mér aðildina meira en ég hafði spáð fyrirfram. Ef ekki væri fyrir þessa aðild þá reikna ég með að heimsóknir hefðu einungis verið vikulegar. Ég get vel mælt með þessu við vini mína í golfinu.

Tímaramminn finnst mér sanngjarn, bæði hvað varðar hámarkstímalengd pr. dag og fyrirvara til að bóka.


Stefán Baldursson


Mér finnst þetta mjög góður valkostur sem ég mun hiklaust mæla með. Fjárhagslega finnst mér þetta líka hagstætt.


Ari Arason

Þetta hefur reynst frábærlega og já auðvitað er maður að fá miklu meira fyrir peninginn en með því að bóka staka tíma. Við bræður höfum báðir verið í aðildinni og erum mjög sáttir!




Æfingaaðild 19.900kr/mán Skráning
Share by: