Persónuverndarstefna Golfstöðvarinnar

1. Almennt

Golfstöðin leggur mikla áherslu á persónuvernd iðkenda og gætir fyllstu varúðar við meðferð allra persónuupplýsinga. Í persónuverndarstefnu þessari kemur m.a. fram hvaða persónuupplýsinga iðkenda er aflað, með hvaða hætti, í hvaða tilgangi og hvernig þær eru varðveittar. Iðkanda er skylt að kynna sér persónuverndarstefnu Golfstöðvarinnar. Með því að kaupa þjónustu, vöru eða skrá persónuupplýsingar hjá Golfstöðinni er iðkandi að samþykkja skilmála og skilyrði persónuverndarstefnunnar. 


2. Persónuverndarlöggjöf

Lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, eins og þau eru á hverjum tíma, gilda um meðferð persónuupplýsinga. Lögin taka m.a. til vinnslu, vörslu og miðlunar persónuupplýsinga. Golfstöðin tryggir að meðferð persónuupplýsinga sé ávallt í samræmi við gildandi lög og reglur um persónuvernd.


3. Ábyrgð

Metnaður ehf. kt, 610420-1920 ber ábyrgð á skráningu og meðferð persónuupplýsinga í starfsemi Golfstöðvarinnar. Metnaður ehf. er ábyrgðaraðili þeirra persónuupplýsinga sem fyrirtækinu eru veittar en aðsetur fyrirtækisins er að Álfheimum 74, 104 Reykjavík. Allar fyrirspurnir er varða persónuverndarstefnu fyrirtækisins skulu berast skriflega á netfangið golfstodin@golfstodin.is


4. Söfnun og meðhöndlun persónuupplýsinga

4.1 Í hvaða tilgangi?

Golfstöðin safnar upplýsingum um starfsmenn, viðskiptavini og þá birgja sem fyrirtækið á í viðskiptum við. Persónuupplýsingum er safnað til þess að Golfstöðin geti veitt sem besta þjónustu hverju sinni. Í því felst að veita aðgang að vörum, þjónustu og upplýsingum, tryggja að sú þjónusta sem iðkendum sé veitt sé sniðin að þeirra þörfum, gæta öryggis og miðla til þeirra upplýsingum í markaðslegum tilgangi. Golfstöðin safnar eingöngu þeim upplýsingum sem eru nauðsynlegar til að veita þjónustu. Varðveisla þessi er að fullu í samræmi við gildandi lög og reglur um persónuvernd.


4.2. Hvaða persónuupplýsingar og með hvaða hætti?

Kaup á vöru eða þjónustu: Upplýsingar um nafn, kennitölu, heimilisfang, símanúmer og netfang eru varðveittar ásamt upplýsingum um þá þjónustu eða þær vörur sem keyptar eru. Allar upplýsingar sem kaupandi skráir með pöntun munu vistast með pöntuninni, kaupandi þarf því að gæta þess að skrá ekki viðkvæmar persónuupplýsingar vilji hann ekki að þær varðveitist með pöntuninni.


Myndavélakerfi: Golfstöðin er vöktuð með myndavélakerfi meðal annars til þess að tryggja öryggi iðkenda og stöðvar. Upptökur úr kerfinu vistast í tvær vikur en þó, í sérstökum tilvikum, er mögulegt að þær séu vistaðar lengur.


Viðkvæmar persónuupplýsingar: Golfstöðin vistar engar viðkvæmar persónuupplýsingar um gesti sína.

Póstlisti: Við skráningu á póstlista eru varðveittar upplýsingar um netfang. En ábendingar um þjónustu og tilboð eru sendar út af póstlista og í pósthólf iðkanda. 


5. Miðlun

5.1 Almennt

Golfstöðin miðlar ekki áfram persónuupplýsingum til þriðja aðila nema til þjónustuaðila Golfstöðvarinnar til að veita iðkanda þá vöru eða þjónustu sem gerður hefur verið samningur um. Þær upplýsingar eru ekki notaðar í öðrum en upphaflegum tilgangi. Persónuupplýsingarnar eru ekki undir neinum kringumstæðum framseldar eða leigðar.

SalesCloud og Valitor: Við kaup á vörum eða þjónustu er persónuupplýsingum (nafni, heimilisfangi, símanúmeri, netfangi og bankaupplýsingum) deilt með SalesCloud og Valitor í þeim tilgangi að ganga frá greiðslu. Valitor er vottað skv. PCI DSS staðlinum sem setur strangar öryggiskröfur sem ná yfir alla þætti gagnaöryggis og reksturs fyrirtækja sem meðhöndla kortanúmer.


Aðgangsstýring: Golfstöðin er aðgangsstýrð stöð sem er stýrt af talnakóða sem sendur er með tölvupósti og/eða SMS-i. Til þess að koma kóða til skila verður því Golfstöðin að geyma netfang eða símanúmer.


SalesCloud: Vefsíða Golfstöðvarinnar er hýst hjá SalesCloud. Við meðferð persónuupplýsinga fer SalesCloud eftir íslenskum lögum. Gögn SalesCloud eru vistuð á Íslandi. SalesCloud fær ekki aðgang að kortaulýsingum heldur er kaupandi færður yfir á örugga greiðslusíðu Valitor.

Golfstöðin tryggir að þeir þjónustuaðilar sem sinna þjónustu fyrir hönd Golfstöðvarinnar meðhöndli persónuupplýsingar á öruggan hátt.


6. Öryggi

Öryggi og trúnaður persónuupplýsinga skiptir Golfstöðinni miklu máli. Því eru gerðar ríkar kröfur um öryggi persónuupplýsinga og aðgangur að þeim aðgangsstýrður og takmarkaður. Starfsmenn hafa hlotið fræðslu í vinnslu persónuupplýsinga og þagnarskyldu. Persónuupplýsingar eru ekki geymdar lengur en nauðsynlegt er og er þeim eytt eftir að þeirra er ekki lengur þörf.


7. Réttur iðkanda

Líkt og lög kveða á um á iðkandi m.a. rétt á upplýsingum um hvort verið sé að afla persónuupplýsinga um hann og aðgang að þeim upplýsingum. Nánar er kveðið á um rétt þennan í lögum um persónuvernd. Telji iðkandi að meðferð persónuupplýsinga sé ekki í samræmi við lög getur hann sent Persónuvernd kvörtun. Iðkandi getur hvenær sem er óskað eftir því að persónuupplýsingum um hann sé eytt, þær leiðréttar eða afturkallað samþykki um vinnslu persónuupplýsinga með því að senda tölvupóst á golfstodin@golfstodin.is.


8. Áskilnaður um breytingar

Golfstöðin áskilur sér rétt til þess að breyta persónuverndarstefnu sinni í samræmi við laga- og/eða reglugerðarbreytingar eða vegna þess hvernig fyrirtækið vinnur með persónuupplýsingar. Taka þær breytingar gildi þegar uppfærð persónuverndarstefna hefur verið birt á heimasíðu Golfstöðvarinnar.

Share by: